Svikaalda sem tengist rafmyntum herjar núna á Íslendinga sem aldrei fyrr. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svikunum á samfélagsmiðlum sínum.
Lögregla segir fjölmörg fjársvikamál hafa komið upp þar sem landsmenn eru blekktir í síma eða skilaboðum í netheimum til að kaupa rafmyntir í gegnum vefinn. Varar lögregla almenning við og bendir á að um sé að ræða svik sem séu hluti af skipulagðri glæpastarfsemi.
„Gjarnan er hringt í fólk úr íslenskum símanúmerum jafnvel þótt sá sem hringir tali ensku og fólki haldið þar á spjalli á meðan svikin fara fram. Jafnvel þótt íslensk símanúmer séu notuð er viðkomandi aðili ekki staddur á Íslandi,“ eins og segir í færslu lögreglu á Facebook, sem leggur upp með nokkrar góðar reglur fólki til handa, t.d. að hafna öllum viðskiptum við ókunnuga í gegnum síma og gefa aldrei upp lykilorð eða netfang til
...