Ofarlega Guðjón er með Gummersbach í 5. sæti í Þýskalandi.
Ofarlega Guðjón er með Gummersbach í 5. sæti í Þýskalandi. — Ljósmynd/Gummersbach

Guðjón Valur Sigurðsson hefur skrifað undir nýjan samning sem þjálfari þýska handknattleiksliðsins Gummersbach en hann hefur þjálfað liðið frá árinu 2020. Þessi samningur tekur gildi næsta sumar og er til tveggja ára, eða til sumarsins 2027. Undir stjórn Guðjóns hefur gamla stórveldið heldur betur náð vopnum sínum á ný. Hann tók við liðinu í B-deildinni en í vetur leikur það í Evrópudeildinni sem eitt af sterkustu liðum Þýskalands.