John Krasinski hlaut nýverið titilinn „Sexiest Man Alive“, en margir telja Glen Powell hafa átt hann skilið. Glen hefur nú svarað orðrómi um að hann sé á leið að taka við af Tom Cruise, sem er að verða 62 ára, í „Mission Impossible“-seríunni. Hann segir það hins vegar algjört „mission impossible“ að fylla spor Toms, sem er þekktur fyrir að framkvæma áhættuatriði sjálfur. „Mamma myndi banna mér það,“ sagði Glen sem kallaði hlutverkið hálfgerða dauðagildru. Glen hefur þó verið kallaður yngri útgáfan af Tom. Nánar í Stjörnufréttum Evu Ruzu á K100.