Nemendur tónlistardeildar Listaháskóla Íslands flytja íslenska tónlist í Hallgrímskirkju í dag, 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu. Í tilkynningu segir að á dagskrá séu einleiksverk á orgel, þekkt íslensk sönglög og kórverk. Tónleikarnir hefjast klukkan 14. Aðgangur er ókeypis.