Zoe Saldaña leikur aðalhlutverkið.
Zoe Saldaña leikur aðalhlutverkið. — AFP/Valerie Macon

Kyn Konur bera uppi nýjustu kvikmynd franska leikstjórans Jacques Audiard sem nefnist Emilia Pérez. Zoe Saldaña er sögð fara mikinn sem lögmaður sem tekur að sér að hjálpa mexíkóskum gangster, sem Karla Sofía Gascón leikur, að skipta um kyn og hefja nýtt líf sem téð Emilia. Þarna er einnig að finna Selenu Gomez, sem leikur eiginkonu hans/hennar. Ofan á allt saman erum við að tala um söngvamynd og stöllurnar syngja víst úr sér lungun en lögin eru eftir frönsku poppstjörnuna Camille. Gagnrýnandi blaðsins The Evening Standard hleður myndina lofi og segir hann furðulegt meistaraverk. Emilia Pérez kom inn á efnisveituna Netflix í vikunni.