— Morgunblaðið/Árni Sæberg

Getur þú lýst þinni tónlist með orðum?

Tónlistin mín er mjög róleg og myndræn. Ég reyni alltaf að lýsa landslagi eða ímynduðum sögum í nútíð og fortíð.

Hvað veitir þér innblástur?

Það er bara þetta samtal við hversdaginn sem veitir mér mestan innblástur. Lífið, fólk sem ég hitti, vinir, fólk sem ég elska, fólk sem ég hata. Náttúruöflin veita mér innblástur. Ég hlusta mikið á alls konar tónlist sem veitir mér innblástur og nú nýverið hef ég verið innblásinn af íslenskri kóratónlist.

Nú hefur þú spilað víða um heim, ertu hér í fyrsta sinn?

Já, ég fékk þetta stórkostlega tækifæri að fá að vera hér í skiptidvöl sem er skipulögð af Trempo í Frakklandi og

...