Þið hafið selt og gefið land og auðlindir okkar, þið hafið holað Ísland innan frá. Ekkert ykkar hefur skýra sýn á að stýra landi og þjóð.
Stefanía Jónasdóttir
Stefanía Jónasdóttir

Stefanía Jónasdóttir

Bjarni Ben, Þórdís Kolbrún, þið hafið ákveðið að ganga veg Heljar með stríðsherranum Selenskí, sem er ekki lengur forseti Úkraínu. Þekkið þið ekki sögu Úkraínu? Skömm ykkar verður mikil þegar stríðið verður gert upp, og svo Guðlaugur vindmylla. Þið eruð ekki hæf, svo takið ykkur frí.

Sigurður Ingi, rótum nú í drullupolli Framsóknar og að hver sé hræddur við hvern, setjum það í nefnd og bíðum, næsti taxi gæti pikkað ykkur upp.

Svandís Svavars, VG, hlýtur að geta fundið sér kynjafarveg utan þings. Þú Katrín og þinn flokkur hafið eyðilagt flest sem íslenskt er. Undirferli er merki VG.

Kristrún, Samfylking, þú hefur ekki getu til að breyta einu né neinu til hagsbóta fyrir þjóðina. Þjóðin og fyrirtæki eru ofurskattlögð fyrst við

...