Sögnin að grípa ætti að hljóma kunnuglega. Orðasambandið að grípa um sig merkir að ná tökum (á e-u) eða breiðast út. Það getur verið fögnuður eða skelfing eftir atvikum – reyndar oft eitthvað óskemmtilegt
Sögnin að grípa ætti að hljóma kunnuglega. Orðasambandið að grípa um sig merkir að ná tökum (á e-u) eða breiðast út. Það getur verið fögnuður eða skelfing eftir atvikum – reyndar oft eitthvað óskemmtilegt. „Skelfing greip um sig heima hjá mér þegar geimverurnar lentu í garðinum.“ Greip, hvorki „braut“ né neitt annað.