Hjón í Suður-Ástralíu lentu í óvæntri uppákomu þegar þau komu heim eftir miðnætti og fundu kóalabjörn í svefnherberginu sínu. Fran Dias Rufino, sem er frá Brasilíu, sagðist hafa gleymt hvernig ætti að tala ensku í áfallinu og byrjað að hrópa á portúgölsku. Eiginmaður hennar reyndi að hemja kóalabjörninn með fötum á meðan hún hringdi í dýrasérfræðinga og náði öllu á myndband. Að lokum tókst að lokka dýrið út og í tré í garðinum. „Ég held að hann sé orðinn hluti af fjölskyldunni núna,“ sagði Rufino glettin. Nánar í jákvæðum fréttum á K100.