Indíana Sólveig Jónsdóttir fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 2. mars 1932. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 3. nóvember 2024.
Foreldrar hennar voru Jón Ásgeir Kristjánsson, f. 3. ágúst 1898, d. 17. febrúar 1973, og Sigrún Sigurðardóttir, f. 9. júlí 1907, d. 10. janúar 1953. Systkini hennar eru Sigríður Þórdís Jónsdóttir Renda, f. 2. október 1928, d. 16. nóvember 2012, og Kristján Annes Stefán Jónsson, f. 27. mars 1930, d. 5 október 2018.
Fósturforeldrar hennar voru Guðmundur Pálmason, f. 17. apríl 1888, d. 10. mars 1982, og Sigríður Anna Kristjánsdóttir, f. 13. janúar 1907, d. 21. mars 1990. Fóstursystkini hennar eru Pálmi Jón Guðmundsson, f. 9 apríl 1933, d. 25. febrúar 2011, og Sólveig Sigurborg, f. 9. september 1938.
Indíana Sólveig giftist Sævari Guðlaugssyni 1958, þau
...