„Allir sem rætt er við skilja mikilvægi málsins; það er að Vestfirðir séu jafnsettir öðrum byggðum landsins um innviði,“ segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis og forsvarsmaður Innviðafélags Vestfjarða
Frumkvöðull Þróunin er jákvæð. Börnum í skólum á Ísafirði fjölgar og slíkt gefur sterkar vísbendingar um framtíðina, segir Guðmundur í viðtalinu.
Frumkvöðull Þróunin er jákvæð. Börnum í skólum á Ísafirði fjölgar og slíkt gefur sterkar vísbendingar um framtíðina, segir Guðmundur í viðtalinu. — Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Allir sem rætt er við skilja mikilvægi málsins; það er að Vestfirðir séu jafnsettir öðrum byggðum landsins um innviði,“ segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis og forsvarsmaður Innviðafélags Vestfjarða. „Þessi viðhorf hafa komið ágætlega fram nú fyrir alþingiskosningar á fundum og í samtölum sem við höfum átt við frambjóðendur. Slíkt gefur okkur væntingar um að raunverulegur vilji sé til úrbóta, svo miklu máli sem slíkt skiptir fyrir áframhaldandi sókn

...