Alltaf heldur maður upp á ópersónulega notkun sagna og gleðst þegar maður sér hana, líka þótt ekki sé alveg rétt með farið. Báturinn kennir grunns og báturinn tekur niðri – en bátinn rekur að landi og bátnum…

Alltaf heldur maður upp á ópersónulega notkun sagna og gleðst þegar maður sér hana, líka þótt ekki sé alveg rétt með farið. Báturinn kennir grunns og báturinn tekur niðri – en bátinn rekur að landi og bátnum hvolfir. Tvö hin síðarnefndu þessara ónotalegu dæma eru ópersónuleg en hvort með sínu fallinu. Gaman ef svo héldist.