Elísabet Kristjánsdóttir fæddist á Norðfirði 12. maí 1969. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 9. nóvember 2024 eftir stutt veikindi.
Foreldrar hennar eru Barbara Stefánsdóttir, f. 29.9. 1943, og Kristján Vigfússon, f. 23.12. 1936. Bróðir hennar er Þorsteinn Guðmundsson, f. 5.11. 1965. Maki hans er Bára Margrét Baldvinsdóttir, f. 14.5. 1963, þau eiga fimm börn og átta barnabörn.
Eftirlifandi eiginmaður er Sævar Örn Arngrímsson, f. 6.7. 1971. Foreldrar hans: Gerður Jónsdóttir, f. 6.5. 1942, og Arngrímur Ægir Kristinsson, f. 11.4. 1935, d. 1.12. 2022.
Elísabet eða Bettý eins og hún var ávallt kölluð kynntist Sævari árið 1999 og stuttu síðar hófu þau búskap á Grjótagötu 6 á Eskifirði. Þau gengu í hjónaband 6.7. 2003. Synir þeirra eru: Kristján Guðni, f. 3.6. 2003, og Arngrímur Ari,
...