Hnotubrjóturinn, jólasýning Dansgarðsins, Klassíska listdansskólans og Óskanda, var sýnd í tvígang í gær í Borgarleikhúsinu.
Klassíski listdansskólinn og Óskandi settu upp sína eigin útgáfu af þessu klassíska jólaverki þar sem blandað var saman nútímalistdansi og klassískum ballett. Um er að ræða fjórða skiptið sem Dansgarðurinn setur upp Hnotubrjótinn.