Spánn Thea Imani Sturludóttir og Valur mæta Málaga frá Spáni.
Spánn Thea Imani Sturludóttir og Valur mæta Málaga frá Spáni. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Valur og Haukar fengu andstæðinga frá Spáni og Úkraínu þegar dregið var í 16 liða úrslit Evrópubikars kvenna í handknattleik í Vínarborg í gær. Valskonur mæta Málaga Costa del Sol frá Spáni og Haukar mæta Galychanka Lviv frá Úkraínu. Leikirnir fara fram á bilinu 11. til 19. janúar en Galychanka Lviv hefur leikið alla leiki sína í keppninni til þessa í Aserbaísjan og Hafnfirðingar gætu því verið á leiðinni í langt ferðalag.