Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, valdi í gær þá 35 leikmenn sem koma til greina fyrir HM 2025 sem fram fer í Danmörku, Króatíu og Noregi í janúar á næsta ári. 18 leikmenn halda til Króatíu, þar sem riðill og milliriðill Íslands, takist liðinu að komast þangað, verða leiknir. Landsliðið kemur saman til æfinga 2. janúar en 35 manna hóp landsliðsins má sjá í heild sinni á mbl.is/sport.