Björn Bjarnason
Björn Bjarnason

Á heimasíðu sinni fjallar Björn Bjarnason um nýfallinn dóm héraðsdóms um að breyting á búvörulögum hafi strítt gegn stjórnarskrá:

„Fyrirtækið Innnes stefndi samkeppniseftirlitinu með kröfu um inngrip eftirlitsins í háttsemi framleiðendafélaga kjötafurða. Eftirlitið sagðist ekki hafa heimild til inngrips eftir breytingu á búvörulögunum. Niðurstaða héraðsdómarans er að frumvarpinu um nýjar samkeppnisreglur í búvörulögunum hafi verið breytt svo mikið í meðförum þingsins að það hafi ekki farið í gegnum þrjár umræður á þingi eins og krafist sé í 44. gr. stjórnarskrárinnar.

Tekur dómarinn sér fyrir hendur að vega og meta meðferð málsins í atvinnuveganefnd þingsins og tækifæri sem hagaðilum utan þings voru gefin til að gera athugasemdir. Telur hann setningu laganna brjóta gegn

...