Björn Júlíusson fæddist í Reykjavík 19. nóvember 1940. Hann lést á Landspítalanum 12. nóvember 2024.

Foreldrar hans voru Hanna Guðrún Jóhannesdóttir, f. 1920, d. 2000, og Júlíus F. Óskarsson, f. 1914, d. 1992. Stjúpfaðir hans var Magnús Þ. Sigurðsson, f. 1913, d. 2002. Systkini sammæðra Anna Vigdís Gunnlaugsdóttir, f. 1943, d. 2022, Sigurður Magnússon, f. 1948, og Guðleif Unnur Magnúsdóttir, f. 1953.

Hinn 21. nóvember 1959 kvæntist Björn Guðrúnu Ásmundsdóttur, f. 27. ágúst 1940. Foreldrar hennar voru Ásmundur Ásmundsson, f. 1907, d. 1976, og Gróa Ásta Jafetsdóttir, f. 1902, d. 1988.

Börn Björns og Guðrúnar eru: 1) Ásmundur, f. 11. nóvember 1957, fyrri maki Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, börn þeirra eru Guðrún Ósk, f. 1980, Mánarós Iðunn, f. 1986, og Ásmundur Gunnar, f. 1988. Fyrir átti Ragnheiður

...