Vigdís Hallfríður Guðjónsdóttir fæddist á Oddsstöðum í Lundarreykjadal 27. október 1946. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands 7. nóvember 2024.
Foreldrar hennar voru Ingibjörg Sigríður Sigurðardóttir, f. 29. apríl 1919, d. 8. febrúar 1987 og Guðjón Bjarnason, f. 16. desember 1911, d. 2. ágúst 2007.
Systkini Vigdísar eru fjögur. Elstur er Sigurður, f. 17. mars, 1942, giftur Gígju Garðarsdóttir, f. 18. september 1944, d. 12. september 2023, Ástríður, f. 4. júlí 1949, d. 20. ágúst 1949. Bjarni, f. 6. ágúst 1954, giftur Margréti Grétarsdóttur, f. 12. febrúar 1958, Ástríður Lilja, f. 15. nóvember 1955, gift Margeiri Þorgeirssyni, f. 24. september 1955.
Hinn 17. júní 1972 giftist Vigdís eiginmanni sínum Kristjáni Jóhannessyni, f. 21. febrúar 1945. Foreldrar hans voru Jóna Kristjánsdóttir, f.
...