Bjarni Hólm Frímannsson fæddist á Dalvík 12. maí 1939. Hann lést 12. nóvember 2024 á Hrafnistu í Hafnarfirði.

Foreldrar hans voru Frímann Sigurðsson, f. 18.12. 1902, d. 31.12. 2001, og Árný Lilja Þorleifsdóttir, f. 9.3. 1901, d. 30.8. 1995. Bjarni á einn bróður, Hauk, sem fæddist 13. maí 1935 og lifir bróður sinni.

Bjarni kynntist konu sinni Jytte meðan hann var við nám í Kaupmannahöfn. Þau giftust 14. nóvember 1966 og þeim fæddust þrjár dætur. Þær eru: 1) Marianne Hólm, f. 9.5. 1966, sonur hennar er Bjarni Hólm, f. 13.8. 1990. Sambýlismaður Marianne er Kristján Guðlaugsson. 2) Ása Karin Hólm, f. 16.1. 1969, hún er gift Henning Frey Henningssyni og þau eiga börnin Lovísu Björt, f. 11.10. 1995, og Hilmar Smára, f. 3.9. 2000. Fyrir átti Ása Karin soninn Arnar Hólm Kristjánsson, f. 10.8. 1989. 3) Lise-Lotte, f. 2.2. 1971, hún er gift Even Brøste

...