Guðlaugur Bjarnason fæddist 5. september 1949 í Reykjavík. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar á Hjúkrunarheimilinu Silfurtúni í Búðardal 2. nóvember 2024.
Foreldrar hans voru Bjarni Sigurðsson, f. 27. júlí 1911, d. 12. janúar 1995, og Svanhvít Svala Kristbjörnsdóttir, f. 3. janúar 1918, d. 24. desember 1998.
Systkini hans eru Guðbjörg, f. 1938, d. 2019; Sigurður Runólfur, f. 1941, d. 1959; Sigurjón Skúli, f. 1943, d. 2012; Guðrún Brynhildur, f. 1945, búsett í Bandaríkjunum; Karólína Guðmunda, f. 1956, búsett í Reykjavík; Sigrún, f. 1960, búsett í Bandaríkjunum.
Eftirlifandi eiginkona er Guðlaug Harðardóttir, f. 14. janúar 1951, en þau giftu sig þann 5. desember 1970.
Börn þeirra eru: 1) Vilhjálmur Hörður, f. 19. september 1970. Kvæntur Hönnu
...