Hreinn Bergsveinsson fæddist 6. júlí 1934. Hann lést 17. október 2024.

Útför hans fór fram 30. október 2024.

Elsku hjartans afi minn, nú ertu kominn í sumarlandið góða. Það verður skrítið að koma til ykkar ömmu, fá ekki afaknús og heyra þig segja „ertu komin elsku Bryndísin mín“ og lauma lófa mínum í þinn.

Melgerðið var alltaf mitt annað heimili og fannst mér hvergi betra að vera en hjá ykkur, hlýjan, kærleikurinn og ástin umvafði mig.

Ég var ekki sátt fimm ára stelpa þegar foreldrar mínir ákváðu að flytja með mig til Danmerkur enda fékk ég að ferðast ein yfir hafið til að koma í heimsókn til ykkar ömmu. Þú hafðir alltaf áhuga á öllu því sem við vorum að gera í lífinu, spurðir okkur spjörunum úr og sagðir okkur endalausar sögur af ykkur ömmu, af

...