Handknattleiksdeild ÍBV hefur samkvæmt heimildum Morgunblaðsins lagt fram kæru vegna framkvæmdar í kringum leik Hauka og ÍBV í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla á Ásvöllum þann 17. nóvember. Haukar unnu leikinn en ÍBV er ósátt við að Haukar hafi…
Ásvellir Daniel Vieira í baráttunni í leik liðanna í bikarkeppninni.
Ásvellir Daniel Vieira í baráttunni í leik liðanna í bikarkeppninni. — Morgunblaðið/Hákon

Handknattleiksdeild ÍBV hefur samkvæmt heimildum Morgunblaðsins lagt fram kæru vegna framkvæmdar í kringum leik Hauka og ÍBV í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla á Ásvöllum þann 17. nóvember. Haukar unnu leikinn en ÍBV er ósátt við að Haukar hafi breytt leikskýrslu eftir að fresturinn til þess að gera breytingar á henni fyrir leik var runninn út. Eyjamenn hafa farið fram á það við HSÍ að þeim verði dæmdur sigur í leiknum.