Síðdegistónar í Hafnarborg fara fram í kvöld, föstudaginn 22. nóvember, klukkan 18. Segir í tilkynningu að þar bjóði gítarleikarinn Andrés Þór norrænu tríói til leiks sem auk hans sé skipað þeim Frederik Villmow trommuleikara og Bárði Reinert Poulsen bassaleikara. „Þeir félagar léku í byrjun sumars á nokkrum tónleikum í Noregi við góðar undirtektir.“ Á efnisskránni verða frumsamin lög eftir Andrés auk þess sem „einstaka vel valdir djasshúsgangar fá að heyrast í bland“.