Ég er alveg jafn mikið jólabarn og ég var sem lítil stelpa,“ segir Áslaug. Þegar hún var barn þóttu henni allar jólahefðir á heimilinu notalegar og skemmtilegar. „Til dæmis baksturinn og að skreyta piparkökur, kaupa og skreyta jólatréð, setja skó í gluggann, hlusta á tónlist, spila borðspil og opna pakkana.“
Áslaug er gift Sacha Tueni og saman eiga þau soninn Ocean Thor, sem er tveggja og hálfs árs. Sonur Áslaugar úr fyrra hjónabandi er Gunnar Ágúst Thoroddsen, 31 árs. Hann og konan hans Marlena eiga tæplega þriggja ára dreng, barnabarnið hennar Áslaugar, Óliver Gunnar.
Áslaug og Sacha hittust fyrst á Íslandi sumarið 2018. Þá var hún stödd hérlendis að skipuleggja tækniráðstefnu í Hörpu. Þau áttu sameiginlega vini sem stóðu að ráðstefnunni og Sacha var einn af ráðstefnugestunum. Á þeim tíma bjó Áslaug í New York en hann í San Francisco svo þau hittust ekki aftur
...