Þórdís Kolbrún skipar annað sæti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi, er varaformaður flokksins og utanríkisráðherra Íslands.
Hún segir að vextir og verðbólga, heilbrigðismál, húsnæðismál og öryggi í samfélaginu séu þau mál sem brenni helst á kjósendum sem hún hefur rætt við í aðdraganda kosninga.
„Við þurfum ekki að hækka skatta, við þurfum ekki að auka ríkisútgjöld,“ segir hún.
Þórdís segir mikilvægt að einfalda efnahagsreikning ríkisins, fækka ríkisstofnunum og hefja söluferli í Landsbankanum. Hún vill afnema einokun ÁTVR, brjóta upp Íslandspóst og bjóða út þann rekstur. „Við erum með 160 stofnanir, sem er fráleitt,“ segir hún.
Þórdís segir Ísland þurfa að vera á tánum í öryggismálum. Hún bendir á að 0,1% af vergri landsframleiðslu sé
...