Kópavogur Ágúst Orri samdi við Íslandsmeistara Breiðabliks.
Kópavogur Ágúst Orri samdi við Íslandsmeistara Breiðabliks. — Ljósmynd/Breiðablik

Ágúst Orri Þorsteinsson er genginn aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Breiðablik. Hann kemur frá ítalska félaginu Genoa sem hann var á mála hjá í rúmt ár. Í tilkynningu frá knattspyrnudeild Breiðabliks segir að Ágúst hafi samið til næstu fjögurra ára, út tímabilið 2028. Hann er 19 ára gamall kantmaður og sóknartengiliður sem hefur leikið níu leiki fyrir Breiðablik í efstu deild. Þá á Ágúst að baki þrjá bikarleiki og eitt mark fyrir liðið.