Sýning bresku söngkonunnar Xenna, Töfrandi heimur Taylor Swift, fer fram í Eldborgarsal Hörpu þann 29. mars á næsta ári. Segir í tilkynningu að um sé að ræða tveggja klukkustunda tónlistarveislu með öllum helstu smellum Swift sem hin 29 ára gamla…
Xenna Hin 29 ára gamla söngkona þykir ná að fanga rödd Taylor Swift.
Xenna Hin 29 ára gamla söngkona þykir ná að fanga rödd Taylor Swift.

Sýning bresku söngkonunnar Xenna, Töfrandi heimur Taylor Swift, fer fram í Eldborgarsal Hörpu þann 29. mars á næsta ári. Segir í tilkynningu að um sé að ræða tveggja klukkustunda tónlistarveislu með öllum helstu smellum Swift sem hin 29 ára gamla söngkona Xenna muni flytja ásamt dönsurum og hljómsveit. Um sé að ræða „Eras-upplifun“ sem fylgi eftir samnefndu tónleikaferðalagi Taylor Swift sem hún sjálf hafi lýst sem ferðalagi í gegnum öll tónleikatímabil sín.

„Við erum ákaflega ánægð með að bjóða íslenskum áhorfendum upp á þessa sýningu. ­Söngkonan Xenna er afar hæfileikarík söngkona og nær á lýtalausan hátt að fanga rödd og magnaða sviðsframkomu Taylor Swift sem hefur gert hana að vinsælustu og launahæstu stórstjörnu á tónlistar­sviði heimsins í dag,“ er haft eftir James Cundall, framleiðanda sýningarinnar. „Þetta er frábær tónlistarviðburður sem höfðar til fólks á öllum aldri.“