„Ég hef óbeit á bláum jólaseríum og veit ekki hverjum datt í hug að það gæti verið kósí.“

Fagurkerinn Júlíana Sól Sigurbjörnsdóttir er eigandi verslunarinnar Officina í Reykjavík. Hún viðurkennir að hún sé mikið jólabarn og eigi það móður sinni að þakka. Jólaborð Sólar þetta árið er guðdómlega fallegt, hlýlegt og stílhreint með velúrslaufum og silfurkertastjökum.

„Mamma gerði alltaf svo kósí um jólin þannig að snemma í nóvember á ég það til að byrja aðeins að vinna mig inn í jólatónlistina og hlakka til jólanna,“ segir Sól.

Skreytir þú mikið fyrir jólin?

„Ég myndi kannski ekki segja að ég væri algjörlega stjórnlaus í skreytingum fyrir jólin en ég á nokkra fallega hluti sem

...