Maja Sigurgeirsdóttir fæddist í Reykjavík 12. júlí 1938. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 11. nóvember 2024.

Foreldrar hennar voru Sigurgeir Sigurðsson, f. 14.9. 1916, d. 10.9. 1997, og Ástrós Helga Sigfinnsdóttir, f. 8.8. 1909, d. 7.6. 1971. Hálfsystir Maju var Hulda Daníelsdóttir, f. 4.3. 1951, d. 13.4. 2013.

Maja giftist hinn 8. ágúst 1959 Sigurði Þorbjörnssyni, f. 1.6. 1937, d. 4.7. 2008. Foreldrar hans voru hjónin Eyjólfur Þorbjörn Benediktsson, f. 21.3. 1902, d. 26.12. 1985, og Magnea Sigríður Friðriksdóttir, f. 27.1. 1907, d. 10.11. 1993. Maja og Siggi bjuggu allan sinn búskap í Keflavík.

Börn þeirra eru Eyjólfur Ben Sigurðsson, f. 15.9. 1964, d. 5.10. 1985, og Ásta Ben Sigurðardóttir, f. 7.6. 1967. Ásta er gift Erlingi Bjarnasyni, f. 23.4. 1959. Börn þeirra eru María Ben, f. 1988,

...