Halldór Arnarson fæddist í Reykjavík 31. júlí 1977. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 11. nóvember 2024.
Foreldrar hans eru hjónin Örn Ingvarsson verkfræðingur, f. 16. október 1946, og Hildur Halldórsdóttir kennari, f. 15. mars 1946.
Systkini Halldórs eru: 1) Kristín Arnardóttir, f. 16. júlí 1966, gift Ágústi Gliese Guðmundssyni, f. 14. júní 1966, þeirra börn a) Örn Ágústsson, f. 23. maí 1991, sambýliskona Cathrine Frederiksen, f. 26. október 1988. b) Eyþór Gliese Ágústsson, f. 30. september 1992, kvæntur Önnu Steinu Ingimundardóttur, f. 19. september 1992. c) Logi Gliese Ágústsson, f. 29. nóvember 1997, sambýliskona Elín Ásta Pálsdóttir, f. 26. apríl 1999. 2) Ingvar, f. 5. maí 1979, kvæntur Kristjönu Rós Oddsdóttur Guðjohnsen, f. 19. mars 1981, barn Dagur Kristinn Ingvarsson, f. 23. mars 2018.
...