Gísli Rafn Ólafsson, sem skipar annað sæti á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi, segir húsnæðismál, loftslagsmál og samgöngumál brenna á ungu fólki.
„Það vill flytja út fyrir fimmtugt,“ segir hann og vísar í orð ungmennis sem hann ræddi við á dögunum.
Hann segir Pírata vilja auka framboð á húsnæðismarkaði m.a. með því að takmarka skammtímaleigu, sem hann segir aðallega ferðamenn nýta sér.
„Þarna eru rúmlega 4.000 íbúðir hérna á höfuðborgarsvæðinu sem væri hægt að koma hratt inn á markaðinn án þess að fara í það að byggja upp eða slíkt. Við viljum gera það með skattalegum hvötum og reglum,“ segir hann.
Gísli Rafn vill fara í „réttlát umskipti“ í loftslagsmálum, hætta svokallaðri „stóriðjustefnu“ og segir sjókvíaeldi í
...