„Mér finnst ég eiga skilið að gera þetta“ merkir ekki Mér finnst mér bera skylda til að gera þetta. „Mér fannst ég eiga skilið að mega draga afmælisfánann að húni því ég hafði saumað hann“: fannst ég verðskulda það
„Mér finnst ég eiga skilið að gera þetta“ merkir ekki Mér finnst mér bera skylda til að gera þetta. „Mér fannst ég eiga skilið að mega draga afmælisfánann að húni því ég hafði saumað hann“: fannst ég verðskulda það. En: „Mér fannst mér bera skylda til að biðjast afsökunar á að hafa tekið vitlausa ræðu og ávarpað júdókeppendurna kæru Patreksfirðingar.“