Endurnýting drifrafgeyma rafmagnsbíla er stutt á veg komin og ekki liggja fyrir skýrar leiðbeiningar frá stjórnvöldum, að mati þjónustuaðila, um örugga meðferð geymanna eftir að bílarnir fara úr umferð
Endurnýting Netpartar eru með sérstakan 40 feta gám á lóðinni þar sem er passað upp á hita- og rakastig.
Endurnýting Netpartar eru með sérstakan 40 feta gám á lóðinni þar sem er passað upp á hita- og rakastig. — Morgunblaðið/Eggert

Fréttaskýring

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Endurnýting drifrafgeyma rafmagnsbíla er stutt á veg komin og ekki liggja fyrir skýrar leiðbeiningar frá stjórnvöldum, að mati þjónustuaðila, um örugga meðferð geymanna eftir að bílarnir fara úr umferð. Þjónustuaðilar eins og partasölur fá ekki greitt fyrir að taka geymana úr og er vísað á förgunarstöðvar.

Fá ekki greitt fyrir geymana

Aðalheiður Jacobsen, eigandi og framkvæmdastjóri Netparta, segir að þjónustuaðilarnir fái greiddar 8.000 krónur fyrir að gera bíl tilbúinn til endurvinnslu með því að tappa olíum af og taka af þeim dekkin, en fái ekki greitt fyrir drifrafgeyminn.

„Miðað við þær leiðbeiningar sem ég hef fengið hjá úrvinnslusjóði,

...