Ágúst Valfells var fæddur 24. mars 1934. Hann lést 15. nóvember 2024.

Útför hans fór fram 22. nóvember 2024.

Gústi var afi Freyju, Ágústar, Kjartans, Matthildar, Ólafs, Kára, Ásgeirs og Karls
Ágústs og langafi Emils. Þegar ég var lítil fannst mér alveg sjálfsagt að afi frændsystkina minna sýndi okkur Tómasi ómældan áhuga og hlýju, eins og sínum eigin barnabörnum.

Þegar við fluttum til Íslands frá Bretlandi, smeyk við nýjan skóla og menningu, deildi Gústi með okkur hvernig það var fyrir hann, á svipuðum aldri, að flytja frá Bandaríkjunum til Íslands. Þegar við vorum á leið í amerískar sumarbúðir, „Camp Killooleet“, sagði Gústi okkur frá því að hafa verið tíu ára gamall í „Camp Chickagami“. Hann var forvitinn, gat sett sig í spor annarra, og var örlátur á tíma sinn

...