Árni Sigurður Jónsson fæddist á sjúkrahúsinu í Neskaupstað 14. desember 1958. Hann lést á heimili sínu Tókastöðum 3. nóvember 2024.

Faðir hans var Jón Kristinn Stefánsson sjómaður, f. 13. júlí 1918 í Hvammi Fáskrúðsfirði, d. 19. september 1981, og móðir hans var Hlíf Kristinsdóttir, f. 9. október 1922 á Litla-Árskógssandi, d. 27. janúar 1987.

Fyrri sambýliskona Árna var Arna Soffía Dal Christiansen, f. 10. maí 1957. Þau slitu samvistir. Seinni sambýliskona hans var Geirþrúður Alfreðsdóttir, f. 18. nóvember 1959, og eiga þau saman Jökul Alfreð, f. 28. júní 2002. Þau slitu samvistir.

Systkini Árna: Guðfinna, f. 4. júlí 1944, d. 22. nóvember 1999. Kristrún, f. 8. mars 1946. Maki Jóhann Ævar Þórisson. Stefán Þór, f. 13. nóvember 1948. Maki Elísa Guðjónsdóttir. Reynir, f. 8. apríl 1952.

...