Stefán Einarsson fæddist 19. ágúst 1949. Hann lést 4. nóvember 2024.

Útför Stefáns fór fram 14. nóvember 2024.

Stefán Einarsson frændi minn er látinn. Hann var einn af þremur drengjum sem mér fannst vera meiri frændur mínir en aðrir og nú eru þessir þrír allir farnir. Við vorum fjórir systkinasynirnir sem fæddumst síðla árs 1949, Stefán elstur, síðan Jón Örn, þá Stefán Magnús og ég yngstur. Stefán Magnús, sem við kölluðum reyndar alltaf Magga, átti heima á Ljósafossi og við sáum hann því sjaldan, en við hinir þrír vorum í Reykjavík og sóttumst eftir að leika okkur saman.

Ég á margar góðar minningar af samveru okkar Stefáns Einarssonar á æskuárunum. Þótt hann byggi austarlega í borginni og ég vestarlega létum við fjarlægðina ekki trufla okkur, lékum okkur eða liðsinntum hvor öðrum þegar hentaði.

...