Viðreisn mælist með mest fylgi allra flokka í nýjustu skoðanakönnun Prósents fyrir Morgunblaðið. Hún er með 22% fylgi. Samfylkingin missir hins vegar töluvert fylgi, nær 4 prósentustig, og mælist nú með 18,3% fylgi
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Viðreisn mælist með mest fylgi allra flokka í nýjustu skoðanakönnun Prósents fyrir Morgunblaðið. Hún er með 22% fylgi. Samfylkingin missir hins vegar töluvert fylgi, nær 4 prósentustig, og mælist nú með 18,3% fylgi.
Minni breytingar eru á fylgi flestra annarra flokka, en hins vegar getur munað töluvert um þær þó litlar séu.
Framsóknarflokkurinn missir þannig nokkurt fylgi og fer niður fyrir 5%. Þá er hann kominn í bráða fallhættu, þó flokkurinn næði að líkindum kjördæmakjörnum þingmanni í þremur kjördæmum.
...