Kópavogur Valgeir Valgeirsson er kominn til Íslandsmeistaranna.
Kópavogur Valgeir Valgeirsson er kominn til Íslandsmeistaranna. — Morgunblaðið/Eyþór

Knattspyrnumaðurinn Valgeir Valgeirsson er genginn til liðs við Íslandsmeistara Breiðabliks eftir að hafa leikið með Örebro í sænsku B-deildinni í hálft þriðja ár. Valgeir er 22 ára og leikur aðallega sem hægri bakvörður. Hann ólst upp hjá HK og skoraði átta mörk í 58 leikjum með liðinu í efstu deild áður en hann fór til Svíþjóðar. Með Örebro lék hann 59 leiki í B-deildinni og skoraði fimm mörk og þá á Valgeir að baki 11 leiki með 21 árs landsliði Íslands.