Sigurvegari Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir ánægð með sigurinn.
Sigurvegari Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir ánægð með sigurinn. — Ljósmynd/Skíðasamband Íslands

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir, A-landsliðskona í alpagreinum, vann alþjóðlegt mót í svigi í Finnlandi á laugardag. Hólmfríður náði öðrum besta tímanum eftir fyrri ferð og fagnaði sigri með góðri annarri ferð. Mótið var það fyrsta hjá Hólmfríði á tímabilinu og óhætt er að segja að nýtt tímabil byrji vel.

„Ég er mjög ánægð með að byrja tímabilið á sigri hér í Finnlandi. Það er alltaf frábær tilfinning að sjá mikla vinnu skila sér. Reynslan nýttist mér líka vel þar sem ég þurfti að halda góðri einbeitingu í gegnum brautirnar,“ sagði Hólmfríður í viðtali við vefsíðu Skíðasambands Íslands.

„Aðstæður voru góðar en mikill ís og nokkuð sleipur klaki stóran hluta brautarinnar gerði þetta afar krefjandi. Ég er verulega spennt fyrir keppnistímabilinu,“ sagði hún.

...