— AFP

Nýtt ár nálgast og sannleikurinn er sá að við höfum misst töluvert margar stjörnur á árinu. Eva tók saman nokkrar þeirra í Stjörnufréttum á K100. Leikarinn Adan Canto lést í janúar, 42 ára gamall, eftir baráttu við krabbamein. O.J. Simpson, fyrrverandi íþróttamaður og dæmdur glæpamaður, lést í apríl, 76 ára, eftir viðburðaríka ævi. Shannen Doherty, leikkona sem margir dáðu, lést í júlí eftir áralanga baráttu við krabbamein. Tito Jackson kvaddi í september, 70 ára gamall, vegna hjartavandamála, og Liam Payne lést nýverið í slysi, aðeins 31 árs.