Ingólfur Ólafsson fæddist 8. ágúst 1927. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 6. nóvember 2024.
Foreldrar hans voru hjónin Ólafur Daníelsson, f. 4.4. 1895, d. 14.3. 1967, og Þórunn Magnúsdóttir, f. 1.10. 1896, d. 24.9. 1990, bændur á Hurðarbaki í Hvalfjarðarstrandarhreppi. Systkini Ingólfs eru Magnús, f. 1924, d. 1995, Sigríður, f. 1925, d. 1998, Óskar, f. 1931, Steinunn Daníelína, f. 1933, og Árni, f. 1935.
Ingólfur giftist Erlu Bjarnadóttur, f. 17.9. 1932, d. 18.3. 2017, þann 14.7. 1960. Börn Ingólfs og Erlu eru: 1) Guðrún, f. 10.11. 1960, maki Sigurður Ólafsson, f. 27.3. 1958. Börn Guðrúnar og Hafsteins M. Eiríkssonar eru Hörður Már, f. 14.8. 1984, barn hans með Zi Liu er Elísa Lóa, f. 2012; Inga Rós, f. 22.9. 1986, maki Adam Hart Rúnarsson, f. 28.1. 1987, börn þeirra eru Nökkvi Leó, f. 2014, Aron Breki, f. 2021, og Fanney Lilja, f. 2024.
...