Unnur Leifsdóttir fæddist 5. janúar 1931 á Neðra-Skarði í Leirársveit. Hún lést 5. nóvember 2024 á hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi.

Foreldrar hennar voru Leifur Þjóðbjörnsson bóndi og verkamaður, f. 12. júlí 1899, d. 29. janúar 1979, og Guðlaug Björnsdóttir klæðskeri og húsmóðir, f. 25. ágúst 1907 d. 4. desember 1995.

Unnur giftist hinn 6. janúar 1952 Eggerti Sæmundssyni húsgagnasmíðameistara, f. 18. júní 1928, d. 26. janúar 1990. Börn Unnar og Eggerts: 1) Hrönn Heiðbjört, f. 7. júní 1951, dóttir hennar er Unnur Alexandra Sigurðardóttir, f. 22. september 1971. Hennar dóttir er Karólína Hrönn Hilmarsdóttir, f. 1. mars 1992. 2) Hlynur, f. 18. febrúar 1956, d. 1. júlí 2014. Hans kona var Jóhanna Lýðsdóttir, f. 26. júní 1957. Dætur þeirra: a) Viktoría, f. 24. október 1975, hennar maður er Tomasz Szymanski. Dóttir Viktoríu er Eva Mjöll Árnadóttir,

...