Næsta vor hefjast tilraunir í Vestmannaeyjum til að veiða þorsk í gildrur. Þekkingarsetur Vestmannaeyja hefur umsjón með veiðunum sem eru fimm ára tilraunaverkefni. Þekkingarsetrið fékk styrk frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands og vinnur að verkefninu í samstarfi við Landssamband smábátaeigenda, Matís og Hafrannsóknastofnun, auk þess að sækja um leyfi hjá matvælaráðuneytinu.
„Í Kanada og Noregi hefur færst í aukana að veiða bolfisk í gildrur og okkar verkefni snýst um það hvort hægt væri að gera slíkt hið sama hér heima,“ segir Hörður Baldvinsson framkvæmdastjóri Þekkingarsetursins og nefnir tvö atriði sem geta skipt máli verði þessi leið að veruleika með tímanum. „Í þessu getur falist orkusparnaður fyrir þá sem stunda veiðar því ekki þarf að sækja gildrurnar fyrr en eftir allt að tíu daga. Þar sem fiskurinn er lifandi verður hann eins ferskur og hægt er þegar hann kemur
...