Gunnar Vatnhamar og Erlingur Agnarsson verða ekki með Víkingum á morgun þegar þeir mæta Noah frá Armeníu í Sambandsdeildinni í fótbolta en viðureignin fer fram í Jerevan. Þeir glíma báðir við meiðsli og urðu eftir heima þegar Víkingar fóru til Armeníu. Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings sagði við Morgunblaðið í gær að aðrir væru tilbúnir í slaginn um dýrmæt stig í keppninni en bæði lið eiga góða möguleika á að komast áfram í umspilið.