1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6 4. 0-0 Bg7 5. He1 e5 6. Bxc6 dxc6 7. a4 De7 8. Ra3 Rf6 9. d3 Rd7 10. Be3 Rf8 11. Rc4 Bg4 12. h3 Bxf3 13. Dxf3 Re6 14. Dg3 Rd4 15. Bxd4 cxd4 16. f4 exf4 17. Dxf4 0-0 18. a5 Had8 19. He2 Dc5 20. Dc7 Db5 21. a6 Dh5 22. Hf2 b5 23. Ra5 Be5 24. Dxa7 Bb8 25. De7 Hde8 26. Df6 He6
Staðan kom upp í opnum flokki Evrópumeistaramóts einstaklinga sem lauk fyrir skömmu í Svartfjallalandi. Enski alþjóðlegi meistarinn Jonah Willow (2.454) hafði hvítt gegn Armenanum Hayk Yeritsyan (2.276). 27. Dxe6! fxe6 28. Hxf8+ Kxf8 29. Rxc6 svarta staðan er núna töpuð þar eð biskup hans er að falla í valinn. 29. … Dc5 30. Rxb8 Da7 31. Rc6 Da8 32. a7 Ke8 33. Ha6! Kd7 34. Hb6 Df8 35. Rb8+ og svartur gafst upp. Þriðja skák heimsmeistaraeinvígisins á milli Dings og Gukesh fer fram í dag, sjá nánar á skak.is.