Þór/KA Jóhann Kristinn Gunnarsson var með liðið í 4. sæti í ár.
Þór/KA Jóhann Kristinn Gunnarsson var með liðið í 4. sæti í ár. — Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning sem þjálfari kvennaliðs Þórs/KA í knattspyrnu til næstu tveggja ára. Jóhann hefur stýrt Akureyrarliðinu undanfarin tvö ár og var áður með það frá 2012 til 2016 en Þór/KA varð Íslandsmeistari undir hans stjórn árið 2012. Jóhann Hreiðarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari en hann var í þjálfarateyminu á þessu ári og kom að þjálfun 2. og 3. flokks félagsins.