„Hvað er hér um að vera?“ þýðir Hvað er að gerast hér? „Alltaf mikið um að vera á uppskeruhátíðinni: ljóðalestur, prjónakeppni, fyllirí og slagsmál.“ Að hafa e-ð við að vera merkir aftur að hafa e-ð fyrir stafni, vera að gera …

Hvað er hér um að vera?“ þýðir Hvað er að gerast hér? „Alltaf mikið um að vera á uppskeruhátíðinni: ljóðalestur, prjónakeppni, fyllirí og slagsmál.“ Að hafa e-ð við að vera merkir aftur að hafa e-ð fyrir stafni, vera að gera e-ð. „Unglingar sem hafa lítið við að vera geta tekið upp á einhverju sem þeir ættu ekki að gera.“