Andri Rúnar Bjarnason, knattspyrnumaðurinn reyndi, hefur samið við Stjörnuna um að leika með félaginu á næsta tímabili. Andri var markahæsti leikmaður Vestra í Bestu deildinni í ár með átta mörk í 18 leikjum en hann lék áður með Val, ÍBV, Esbjerg, Kaiserslautern, Helsingborg, Grindavík, Víkingi R. og BÍ/Bolungarvík. Hann hefur samtals skorað 134 mörk í 333 deildaleikjum á ferlinum og eitt mark í fimm landsleikjum fyrir Íslands hönd.