Fyrstu skóflustungur að nýju vinnsluhúsi landeldisfyrirtækisins First Water við Laxabraut í Þorlákshöfn voru teknar í fyrradag, en stefnt er að því að taka húsið í notkun haustið 2026. Voru það þær Sigríður Birna Ingimundardóttir, Amelía Ósk…
Framkvæmdir Stefnt er að því að taka húsið í notkun haustið 2026.
Framkvæmdir Stefnt er að því að taka húsið í notkun haustið 2026.

Fyrstu skóflustungur að nýju vinnsluhúsi landeldisfyrirtækisins First Water við Laxabraut í Þorlákshöfn voru teknar í fyrradag, en stefnt er að því að taka húsið í notkun haustið 2026. Voru það þær Sigríður Birna Ingimundardóttir, Amelía Ósk Hjálmarsdóttir og Valgerður Friðriksdóttir frá First Water sem tóku stungurnar, ásamt Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur framkvæmdastjóra SFS.

„Við erum virkilega spennt fyrir framkvæmdinni en þetta verður eitt stærsta og tæknivæddasta vinnsluhús landsins. Þegar það kemst í fulla notkun verða í kringum 115 starfsmenn við vinnu þar og verður starfsemi í húsinu alla daga ársins,“ segir Valgerður, mannauðsstjóri First Water.